Dear world rejoice my blog is back twice as black, three times the content

Ég er ekki mest hrifnastur af of mörgum svona “ég fór í kringluna færslum” en nú eftir svona langan downtime, er sannarlega kominn tími fyrir slíka. Ég hélt ég myndi aldrei sjá mitt ástkæra blog aftur, og var í þann veginn að skipta um blog þegar ég frétti að það var komið aftur upp. Ég vil því byrja á því að þakka myblog.is fyrir að fara niður fyrirvaralaust, senda engan póst í downtímanum sínum, svara engum fyrirspurnum og setja enga afsökunarbeiðni á forsíðuna eftir þessi ósköp. En jú þetta er jú frítt… fyrir utan þessar auglýsingar kannski og njósnakökur og eitthvað ( ekkert sem adblock lagar ekki með klikki til tveimur. Einnig fyrir að nýja uppsettning er utter rusl og allt í brotnum linkum.

Margt hefur á daga mína drifið síðastliðnar vikur, og fór bíókerfið sem ég á góðan þátt í að hanna og smíða í gagn í fyrst, regnboganum svo smárabíó og fleiri bíó í sjóndeildarhringnum, ekki slæmt sem fyrsta commercial verkefni :) . Nú geta allir bara farið á netið og keypt sér miða í bíó, prentað hann út, sloppið biðraðir og hættu um að verði uppselt, bíóexperience version 2.0, svo ekki sé nefnt hversu svaðalega auðvelt og þægilegt kerfið er í notkun. (samviskan: donk donk, hættu nú að monta þig!)
Einnig eru prófin kominn og farinn, risaverkefni og þrotlaus vinna í skólanum komið og farið, nokkrar vísindaferðir, hlöðuball, eignaðist bíl (Nissan almera- compact) , Glæpamenn í framboð… afsakið dæmdir og opinberir glæpamenn (slatti laumu náttúrulega), Wii Launchað og neverwinter nights 2 kominn út, átti afmæli og byrjaði í síðasta verkefninu í skólanum svo við nefnum fáa hluti.
Verkefni þetta er mjög skemmtilegt og öðruvísi að því leiti að um 40 manns í námskeiðinu eru allir að vinna saman að einu verkefni, Fjölspilunarleikjaserverogleikjum fyrir Matador og Verbréfaspilið (með options fyrir fleiri). Vonandi verður hægt að spila eitthvað í lok námskeið á netinu og gæti verið gaman að spila þessi klassísku spil við vini og vandamenn gegnum netið.

Ég er í grafík/user-interface-hópnum og er hópstjóri með Svani, trúi engu öðru en að þetta verði ofurstuð og það komi eitthvað yndislega fallegt útúr þessu öllu saman, og leikjafyrirtækin munu bíða í röðum eftir að fá þá til starfa sem tóku þátt í þessu ofurverkefni… ok kannski ekki alveg en svona góður grunnur.

Finar einkunnir og fínt gengi í bíóinu, útréttingar fjölda nafnspjalda í vísindaferðum eru að stíga mér til höfuðs, verð svona pínu að halda mér á mottunni til að springa bara ekki úr einhverju monti og vitleysu, en það má með sanni segja að ég er ekki hinn leiðasti þessa dagana og eina sem böggar mig núna að það er mæting á morgnana kl 8, í þessari viku og næstu 2, eins og margir kannski vita er ég ekki beint þessi hressa morgunmanneskja sem vaknar eldhress á slæginu 6 og fer út í morgunleikfimina, no siree, finnst betra að lúra svona allavega til hálf níu helst síðar.
Ekki það að það væri best að þurfa ekki að sofa (myndi samt vilja geta gert það kannski svona 10 tíma um helgar eða svo.

Ahh jæja nóg raus í bili, margir hlutir í heimspekilegri kanntinum sem mig ég á eftir að rausa um á næstunni, so stay tuned. Og bara muna, tortíma snjó og jólaskrauti þar til 20. des (má versla jólagjafir fyrr)

4 Responses to “World Rejoice -(repost from myblog)”

  1. Ari Says:

    Hmm… hélt að þú værir forritari? Hvers lags forritari er nú það sem skilur tvo sviga eftir hanging í einni grein…
    Ég var að reyna að compile-a þessa færslu og ekkert gekk…

    Gaman að sjá annars að bloggið er komið í gagnið, mun fylgjast spenntur með (og til hamingju með afmælið um daginn :) )

  2. skrekkur Says:

    Til hamingju með afmælið sömuleiðis, já helvítis, visual studio alveg búið að svigaspilla manni :)


Leave a Reply