Ótrúlegt hvað þessi timi líður hratt, allt i einu eru 3 dagar til jóla, maður alltof lítið búinn að pæla í því, og ekki búinn að setja upp neitt jólaskraut, finnst svo eins og ég hafi, verið að kvarta yfir því að jólaskraut hafi komið alltof snemma upp i kringlunni og viðar. Ég hef þó hugsað soldið um jólin, trúnna og hvernig þessu er háttað. Einhverjir prestar eitthvað óhressir að fólk sé ekki að hugsa nóg um jesú og vini hans, en á norðulöndum var nú haldið uppá jólin, langt fyrir tíma kristnitöku, og það sem merkilegra er að við notum enn sama nafn. Það er engin kristssmessa, eða eitthvað álíka (eins og Christmas). Ég sé þvi engan veginn nokkuð að því að trúað kristið fólk sem ótrúað, eða fólk af öðrum trúarbrögðum, taki ekki þátt í þessari hátíð ljóss og kærleika á sínum forsendum.

Jólaskapið fína hef ég þó ekki fundið enn, og kannski ekki gert nóg í því að finna það, hvorki hlustað mikið á jólalög, og þessi snjór sem kom í dag var ekki mjög kurteis og virðist ætla að hverfa fyrir jólin.

Fjöldi jólabloggfærsla í þessum mánuði 445.302

5 Responses to “Í gær var sumar á morgun koma jól”

  1. Hannes Says:

    Já, ég er að bíða eftir að jólaskapið ráðist á mig… Kannski getur maður fengið það í pillu- eða sprautuformi?

    445.302 segiru… er það samkvæmt vísindalegri könnun?

  2. davidi Says:

    Hehe varstu þreyttur þegar þú skrifaðir þetta?
    Fyrsta setningin er með 5 kommum!
    Ein komman var fyrir framan og meira segja :)

    En já sammála um jólin eins og þú veist, enda vorum við að ræða þetta um daginn.

  3. Ævar Says:

    Hannes – Þessa tölu fann ég i stóru ristilskoðunarbókinni.
    Davíð – hmm já pínu en það er engin afsökun víst :p

  4. Ella Says:

    Jólaskapið mitt lét ekki mikið sjá sig fyrr en á aðfangadag þegar ég fann góðu matarlyktina heima! mmm yes, loik it!

  5. Ævar Says:

    mmmmmm matarlykt


Leave a Reply