Upphafið að endalokunum

January 12, 2007

Gleðileg jól, og gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla og allt þetta.

Jæja nú er maður byrjaður á sinni síðustu önninni í Háskólanum í Reykjavík í bili í það minnsta. Verður skrítið að fara úr skólakerfinu þar sem maður hefur verið þar næstum í 20 ár, óvíkjanlegur partur af tilverunni frá því maður man eftir sér.
Reikna nú þó með því að fara í masters fyrr eða síðar en þó ekki fyrr en ég er handviss hvað ég vil. Held ég reyni samt að hugsa sem minnst lengra en þessa önn, erfitt að hugsa sér að yfirgefa skólann, þann skóla sem mér hefur liðið best í, skemmt mér mest og lært mest af öllum í hingað til.
Maður verður svo bara að græða fullt af péningum og kannské stofna fyrirtæki og græða meiri péninga, og finna einhverja til að deila því með.
Úff maður einhvernveginn hafði aldrei hugsað mikið lengra en skólaskóla en brátt lýkur því og maður verður hálf fimmtugur. Reyndar plana að kaupa mér mac pro þegar ég útskrifast … og fara í útskriftarferð, húrra.
Þarf nú að farað ákveða hvert samt til að fá far á skikkanlegu verði.

Susan úr Hogfather
Eitt svona annað óskillt öllu hinu sem ég sá um jólin og fannst pínu skrítið.. allar jólamyndir (including nightmare before christmas) sem ég sá eru utterly fókusaðar á jólasveina og að trúa blint og galið á hinn eina sanna jólasvein, og það sé mjög mikilvægt að trúa á hann. Fatta ekki alveg þessa áráttu, er verið að hjálpa foreldrum að plata krakkana sína, eða einhver svona dulin skilaboð um að trúa bara öllu sem þú ert ekki viss um.. “Ríkistjórnin gerir alltaf réttar ákvarðanir”, “Það er bara einn Guð og hans heilögu orð liggja í biblínunni”, “Always Coca cola” etc.
Besta jólamyndin sem ég um jólin þótti mér þó Terry Pratchets Hogfather, sem er sjónvarpsmynd í tveimur hlutum byggð á samnefndri bók, og er rúmlega 3 tímar. Þetta er mikil snilldar mynd fyrir þá sem fíla terry pratchett og/eða bara fantasy, skemmtilegir characterar góður húmor og já furðuleg á þann hátt sem terry pratchet einum er lagið.

Horfði einnig á Virgin suicides þótt fyrr hefði verið og fannst hún bara mjög góð. En ég var búinn að hlusta á soundtrackið ansi oft sem Air sjá einir um og er það bara einn öflugra að hlusta á eftir að ég loksins sá myndina

Held ég láti þetta nægja í bili …. off you go óprófarkalesna færsla

5 Responses to “Upphafið að endalokunum”

  1. davidi Says:

    Bíddu ertu að véfengja “Always Cocacola”??
    Sacrilege!

  2. Ævar Says:

    yubbs “Sometimes coca cola, Other times loads of pepsi”

  3. Hannes Says:

    Já, þetta verða merkileg tímamót að verða kominn með háskólagráðu. Við verðum að fagna því með rækilegri útskriftarferð – ég mæli með New York og Las Vegas :D

    Mér finnst Go besta jólamyndin – ekki mikið fókusað á jólasveininn þar, þótt hann komi fyrir.

    Jamm, Sofia Coppola og Air klikka ekki… gott stöff.

  4. Ari Says:

    Hmm, New York og Las Vegas… Tökum nú kannski ekki annan og hinn “í leiðinni”… Góð pæling samt!

  5. Hannes Says:

    Ekki vera svona þröngsýnn Ari – það er allt hægt.

    En ef þú endilega vilt þá getum við sleppt NY og farið bara til Las Vegas.


Leave a Reply