Já kominn tími á smá forritablog. Fyrst vildi ég minnast á útgáfu fyrstu betu af Peel (www.getpeel.com) sem snillingurinn Hjalti gerði fyrir mac os X. Forrit er ætlað til að einfalda notkun tónlistarblogga aka mp3 blogga til muna, og jafnvel opna þau fyrir þeim sem ekki hafað stundað skoðun á slíkum bloggum til þessa. Þetta þykir mér allt mjög athyglisvert því ég hef oft velt því fyrir mér hversu viable það er fyrir forritara á íslandi að gera eitthvað sjálfstætt forrit. Planið er að selja þetta fyrir 15$ og miðað við öll þau blog og læti sem hafa orðið vegna þessa forrits virðist stefna í það að þetta muni rokseljast. Það má til gamans geta að ég er vinna í windows útgáfu sama forrits svona í þeim tíma sem ég næ að stela úr öðrum víddum, þannig þetta er með öllu frábært.
Peel Screenie

Annað forrit sem ég má til með að minnast á er FeedReader fyrir windows. Þetta er snilldar rss reader og gerir internetið mun þægilegra í notkun. Nánast öll blog, fréttasíður og hinar ýmsu heimasíður með misreglulegum uppfærslum bjóða uppá rss feeds. Ég hef notast við svona feeds lengi, en í fremur litlu magni og ekki fundið nægilega gott forrit… þar til nú. Mjög auðvelt er að vera með tugi ef ekki hundruði rss feeda í þessu, og fá svo tilkynningar ef eitthvað nýtt kemur(eða ekki ef maður vill ekki sjálfkrafa uppfærslur). Þetta forrit er ókeypis með “engum strengjum” svo engin afsökun fyrir að prófa þetta amk ekki.

One Response to “Hér eru forrit um forritun frá forritara til hinna”

  1. Ella Says:

    Ég ætla einhverntíman að búa til vélmenni sem fer í búðina fyrir mig og kaupir súkkulaði! Ss. intelligensinn þarf að vera þannig að vélmennið viti nákvæmlega hvernig súkkulaði ég er í skapi fyrir!

    Ekki það að þetta komi færslunni þinni svaka mikið við :D


Leave a Reply