Fyrir allnokkru skrifaði ég póst um fegurð, bæði það sem ég kallaði mannlega fegurð, og svo almenn fegurð ( allt annað en manneskjur ).
Hef fundið nokkrar athyglisverðar greinar og eitt stykki fyrirlestur um málefnið eftir það.
Önnur greinin sem ég vísa í hér fyrir neðan er um að mannleg fegurð er að mjög litlu leiti afstæð og afhverju lögun líkamans skiptir svona miklu máli, þetta er ekki eitthvað implantað af tískubransanum og auglýsingaflóði, heldur genatískt og byggt á góðum þróunarlegum ástæðum. Í stuttu máli merkir góð lögun líkamans að viðkomandi sé heilbrigður og líklegt að hann geti borið og fætt heilbrigð börn.
Stundarglasa-lögunin sem karlmenn aðhyllast er mjög sterklega tengt hversu mikið af estrogenum viðkomandi kvennmaður hefur sem einnig bendir til mikillar frjósemi.
Yfirþyngd hefur vonda fylgikvilla svosem aukin möguleika á sykursýki og hinum ýmsu sjúkdómum sem inbyggða genakerfið er ekki mjög hrifið af.
Varðandi fyrirlesturinn sem segir frá í stuttu máli hvað ást er og til hvers hún er á mjög skemmtilegan hátt.
Talandi sem einstaklingur sem hefur orðið alvarlega ástfanginn, get ég staðfest að eiginlega allt sem Helen Fisher segir um ást í þessum fyrirlestri, átti algerlega við um mig þegar ég var þetta ástfangin. Maður verður gersamlega heltekin af einni manneskju, getur ekki hugsað um annað, getur auðveldlega hugsað sér að deyja og drepa fyrir viðkomandi, og vill gera allt til að gera viðkomandi hamingjusaman. Þetta er hlutur sem maður losnar ekki auðveldlega við. Ég hef síðan ég lenti í þessu mikið velt fyrir mér hversvegna í anskotanum þessi tilfinning er, því eins og góð og hún er í fyrstu, ef hún er ekki endurgoldin, veldur það verulegri óhamingju um langt skeið. Þessi tegund af ást er ofarlega á lista afhverju fólk drepur sjálft sig eða aðra í heiminum.
Eins og Helen bendir á þá er þróuninni nokk sama um hamingjustig, heldur er viðhald stofnsins (Mannkynsins í þessu tilfelli) það mikilvægasta. Hún telur að þessi tilfinning hafi þróast til að einstaklingar laðist það sterklega af hverjum öðrum að þeir geta alið upp barn saman, og verið saman (og þolað hvert annað)nægilega lengi til að það vaxi úr grasi.
Þetta hljómar mjög lógískt þó þetta sé mjög kalt og efnislegt. Hún kemur einnig inná hvað getur startað ást í garð annars, td. kynlíf, snerting, og að gera örvandi,æsandi eða skemmtilega hluti saman getur valdið því að einstaklingur verði ástfanginn af öðrum.
Ég mæli eindregið með því að áhugasamir horfi eða hlusti á þennan fyrirlestur (og reyndar fleiri Ted-talks fyrirlesta).

Stutt um ted-talks, Ted-talks er ráðstefna sem saman kemur mjög gáfað fólk úr öllum greinum og áttum og heldur 10-50 mín fyrirlestra. Þessir fyrirlestrar víkka sjónsvið manns ansi mikið.

http://tedblog.typepad.com/tedblog/2006/09/helen_fisher_on.html
http://www.telegraph.co.uk/news/main.jhtml?xml=/news/2007/01/10/nfigure10.xml

7 Responses to “Ást og fegurð volume 2 – cold fusion”

  1. Davíð Says:

    Sniðugur fyrirlestur.
    Ég er einn af þeim sem vill frekar köld lógísk rök fyrir því hvernig hlutirnir virka frekar heldur en tal um “the magic of love”.
    The more knowledge the better.

    Fyndið samt varðandi framhjáhaldið, konur sem eru virkilega að spurja hana af hverju karlar halda mikið oftar framhjá…með hverjum eru þeir að halda framhjá? :)

  2. Ævar Says:

    Já lógík er fín, en samt einhvernveginn saknar maður stundum galdranna í heiminum. Ignorance is blizz but knowledge is right.

  3. Davíð Says:

    Knowledge is power!
    Samt gaman hvað ignorance is bliss frasinn hefur fests við þig núna…

    mwahaha

  4. Davíð Says:

    Tískubransinn er samt eiginlega að imprinta í fólk ekki beint stundarglasalögun, heldur svona meira ljósastauralögun, þar sem ef þú lítur á margar fyrirsætur í dag þá hafa þær lítið kjöt á beinunum.
    Sem ætti að vera nokkuð óaðlaðandi miðað við öll þessi estrogenrök í greininni.

    Held það virki á mig reyndar, ég fíla að sjá flottan rass og brjóst…ekki bara tannstöngul!

  5. Ella Says:

    Já, þetta er mjög áhugavert. Margt þarna sem maður kannast við.. og alveg ótrúlegt hvað það er margt sem er alveg 100% rétt.

  6. Ævar Says:

    Knowledge truly is power, já Davíð, þér tókst að líma ignorance is bliss við mig þarna einhverntímann :)
    Well, sambandi við tísku og módelbransann, þá eru þeir soldið að reyna að gera útlit sem flestum finnst flott, bæði með photoshop trixum, lýtaaðgerðum etc.
    Útkoman verður eiginlega útlit sem er ekki til, en mörgum finnst flott.

    En já þessi fyrirlestur er góður, og slatti í viðbót af þessum TedTalks, búinn að setja slatta á ipodinn og hlusta stundum í bílnum, getur vel verið að ég búi til svona top 10 lista eða eitthvað þegar ég er búinn að hlusta á þá alla.

  7. Ari Says:

    Hmm, ég heimta nýja færslu! Það er nóg komið!

    Eins og stendur virðist þetta bara vera “bloggið sem kom sá og sigraði” keppnina sem gekk út á að blogga allt allt of sjaldan!

    Hlakka til! :)


Leave a Reply